föstudagur, febrúar 04, 2005
NÝ SÍÐA!!
´
Haldið að kappinn sé ekki kominn með nýja síðu-jú heldur betur því ég hef opnað nýja síðu og er hún nú þegar komin í gagnið. Ég hef kosið að nýta mér hexia blogg og er það ekki að ástæðulausu, ég held að margir eigi eftir að feta í fótspor mín og fá sér hexia blogg. Þú getur m.a sent sms og það kemur strax á síðuna þína, einnig geturðu hringt í númer og talað inn á bloggið þitt. Já hexia blogg er mjög sniðugt, ég valdi nafnið island.hexia.net og er ég nokkuð ánægður með nafnið! En endilega kíkið á síðuna, ég gef ykkur mitt loforð um að hún sé mjög flott! Endilega kommentið líka á síðuna um hvernig ykkur finnst hún, ég vil heyra ykkar álit!
SJENSINNBENSINN ER HÆTTUR!!!
'
Já, það hlaut að koma að því, einhversstaðar heyrði ég það að allt tekur enda um síðir! Sjensinnbensinn hefur tekið þá ákvörðun um að hætta með reksturinn, en það er engin ástæða til að örvænta lesendur góðir því sjensinnbensinn hefur opnað nýja síðu og er hún nú þegar komin í gagnið. Ég hef kosið að nýta mér hexia blogg, það er gríðarlega sniðugt og getið þið lesið um það á nýju síðunni minni. En verði ykkur að góðu og kíkið á síðuna-ég get lofað ykkur að þessi síða er mögnuð, það bíða ykkar skilaboð þegar þið farið inn á hana. Endilega kommentið á það hvernig ykkur finnst hún, ég vil heyra ykkar álit!
fimmtudagur, febrúar 03, 2005
Hvað er málið með íslensku tónlistarverðlaunin?
'
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Tilnefnt var í mörgum flokkum og voru Mugison og Jagúar væntanlega sigurvegarar kvöldsins, Mugison vann í flokknum besta poppplatan, besta lagið, besta plötuumslagið og vinsælasti flytjandinn. Söngvari Jagúar, Sammi sópaði hins vegar að sér verðlaunum í öðrum flokkum og vann hann verðlaun fyrir besta flytjandann í jazzflokki, átti bestu plötuna ásamt Tómasi R. Einarssyni. Einnig var Jagúar útnefndir flytjendur ársins í popp,- rokk,- og dægurlagaflokki, bestu rokkplötuna átti reggísveitin Hjálmar.
Það er þessi flokkaskipting sem vakið hefur athygli mína, hvaða tónlistarmenn eru í hvaða flokkum o.s.frv. Ég skil ekki af hverju reggísveit á bestu plötuna í rokktónlist, það er algjörlega óskiljanlegt. Ekki erum við íslendingar á flæðiskeri staddir með rokkhljómsveitir, þarna voru hljómsveitir tilnefndar sem spila rokktónlist eins og t.d Brain Police sem voru nokkuð ferskir á árinu sem leið, einnig var Jan Mayen með góða innkomu, en það er þvílík della að reggíhljómsveitin Hjálmar vinni bestu plötuna, ég hef hlustað á lög með þeim og þetta er svo langt frá því að vera rokktónlist. Ekki nóg með það þá vann Hjálmar einnig verðlaun sem bjartasta vonin í dægurtónlist, ég á eftir að sjá það gerast að reggíið muni slá í gegn á Íslandi á næstu árum, kannski að með hlýnandi loftslagi geti íslendingar dansað fáklæddir við reggíið á götum borgarinnar-hver veit?. Eins og áður segir vann Mugison í nokkrum flokkum og m.a vann hann m.a poppplötu ársins, en hvað er popptónlist? Sú tónlistarstefna sem Mugison fylgir er sóló, þ.e hann að syngja með kassagítarnum- ég hef ekkert á móti Mugison og finnst hann afbragðs tónlistarmaður en er hann popptónlistarmaður? Bakþekking mín segir mér að popphljómsveitir séu hljómsveitir eins og Skítamórall, Á móti sól, Nylon og Sálin svo fáeinar séu nefndar. Svo það sem mér finnst furðulegast við þetta allt saman er það að Jagúar vinnur sem flytjandi ársins í popp,- og rokkflokki og einnig í jazzflokki. Jagúar hefur verið þekkt fyrir flottar fönk/jazz sveiflur en flest annað en rokktónlist. Ragnheiður Gröndal er án efa ein bjartasta vonin í íslenskri tónlist og vann hún verðlaun sem besta popp/rokk söngkonan. Ragnheiður hefur vakið aðdáun mína fyrir sína fallegu klassísku tóna, hún gaf út plötu á síðasta ári sem heitir vetrarljóð og er það ekki popp eða rokkplata- þannig að mér finnst skrítið að hún skuli vera söngkona ársins í þeim flokki.
Mér finnst að þessi tónlistarverðlaun mættu fara í naflaskoðun og það strax, það ættu að vera gerð betri skil á því hvaða tónlist heyrir undir hvaða flokk, þeir sem tilnefna í þessa flokka hafa að mínu mati ekki verið að vinna vinnuna sína nægilega vel. Hátíðin var samt mjög glæsileg, og höfðu skipuleggjendur hátíðarinnar greinilega lagt metnað sinn í það að gera hana sem glæsilegasta. Tilgangur minn með þessum skrifum er ekki að móðga einn eða neinn, og þá sérstaklega ekki tónlistarmennina sem unnu til verðlauna í þessum flokkum, þeir eru örugglega vel að því komnir, frekar er ég að benda á það sem betur mætti fara og gagnrýna þessa flokkaskiptingu sem að mínu mati er út í hött.
föstudagur, janúar 28, 2005
Flassaður í ræktinni af eldri konu!
'
Ég fór í ræktinna í morgun sem oftar þessa daganna, þar sem maður er í fríi á föstudögum er ekkert betra en að taka daginn snemma og missa sig í ræktinni. Ég fór í fitumælingu síðasta föstudag og mældist 17,7%...já ég veit hvað þið eruð að hugsa-alltof mikið. En ég fór svo í fitumælingu aftur í morgun og var ég þá kominn niður í 16,7% og var búinn að missa 800 grömm af hreinni fitu sem er bara nokkuð gott-þó ég segi sjálfur frá. Ég hef að vísu þyngst og er núna tæp 85 kíló en það er vöðvamassinn sem er að segja til sín, meðan ég missi fitu er í lagi að ég bæti á mig vöðvum. En eins og oft þá byrjar maður á hlaupabrettinu og var ég mættur þarna 10 mínútur yfir átta, þarna var fullt af fólki og öll hlaupabrettin upptekin en ég náði þó því síðasta. Ég var búinn að hlaupa í c.a 10 mínútur þegar gýs upp þessi líka svakalega prumpulyktin, ég hélt ég yrði ekki eldri, eftir þetta vottast það að það er vonlaust að vera lafmóður og anda að sér prumpgasi, ég varð að hætta og grunar mig unga konu sem var við hliðina á mér um þetta glæpsamlega athæfi. En þetta var ekki það eina sem gerðist því þegar ég er búinn að vera lyfta í smástund dettur mér í hug að fá mér vatnssopa, ég rölti yfir að barnum þar sem ég helli mér í glas úr könnu. Ég fæ mér sopa í rólegheitunum og kem auga á gamla konu sem situr í stól á móti mér, hún var örugglega búin að vera hlaupa því hún var rennandi sveitt og greinilega heitt í hamsi. Allt í einu lyftir hún bolnum sínum upp og þurrkar svitann af andlitinu á sér, en NEI! gamla konan sem virtist vera svo saklaus var ekki í neinum brjóstarhaldara og feitu, stóru brjóstin á henni lafa niður fyrir nafla, mér varð satt að segja mjög brugðið við að sjá þetta og virtist hún ekkert taka eftir því að hún var að flassa brjóstunum á sér framan í mig, það er allt í lagi að sjá kvenmannsbrjóst, en það eru viss aldursmörk sem maður miðar við, ef maður á annað borð vill sjá þau.
'
En eins og ég hef sagt áður þá er ég orðinn hluti af fréttavefnum Landpostur.is og er ég ritstjóri síðunnar þennan mánuðinn. Ég hvet ykkur til að kíkja á þennan vef og lesa það sem er skrifað þar. Ég er titlaður EÞS undir fréttum en annars Einar Þór Sigurðsson undir öðru. Þar sem er skrifað nokkuð mikið þar, hef ég ekkert verið alltof duglegur við að blogga. En þeir fáu sem lesa síðuna mína vita allavega af því. Endilega kommentið líka á það sem maður skrifar, annars hefur maður enga hugmynd um hver er að lesa bloggið manns. Það er enginn tilgangur að halda úti bloggsíðu sem er ekkert lesinn-þannig að ef fáir eru að kommenta á færslurnar manns gæti maður alveg eins sleppt því að blogga, það er undir ykkur komið hvort ég haldi þessari síðu lengur úti, svo einfalt er það!
'
Over and out!
fimmtudagur, janúar 27, 2005
hmmm?
'
Það er ekkert að gerast þessa daganna, ég er að reyna að finna mér vinnu með skólanum en það gengur bara ekki neitt. Þannig að ég verð örugglega í Reykjavík í sumar í eigin íbúð og alles en það er þó ekki komið á hreint. Bróðir minn er að fara flytja út úr kjallaranum og ætla ég að gera tilkall til íbúðarinnar í sumar hið minnsta. En ég hef fylgst með íslenska landsliðinu í handbolta og hafa strákarnir valdið mér nokkrum vonbrigðum hingað til, ég hef aldrei horft á jafn leiðinlegan handboltaleik á ævinni eins og á móti Kúvæt í gær-sjiiittt hvað þetta var lélegt. Ég held að Rússarnir séu of sterkir fyrir okkur og alveg dæmigert að við töpum svo fyrir Alsír, Alsír hafa nefnilega verið að spila ágætlega á þessu móti. En hvað um það, ég er samt ánægður með nýju mennina sem hafa staðið sig vel. Markús Máni er búinn að vera einn af bestu mönnum liðsins og Vignir félagi minn Svavarsson hefur staðið sig vel. En hvað um það- ég veit að þeir eiga ekki eftir að ná langt, þannig að ég held ég horfi ekki á leikinn á móti Rússum, það er alveg ótrúlegt hvað maður getur verið pirraður yfir handboltaleik, miklu meira pirraður heldur en ef United tapar á móti Arsenal-þetta er mjög skrítið!
fimmtudagur, janúar 20, 2005
Prikið
'
Ég er búinn að vera með hugann við allt annað en að blogga síðustu daga og því hef ég ekki verið duglegur að setja inn nýjar færslur. Þetta má rekja til þess að það er ekki neitt að frétta af mér, reyndar líður tíminn hraðar en geimskip og er nú kominn 20. janúar. En ég ætla að segja ykkur frá einni bíómynd sem ég sá um daginn, þið haldið kannski að það sé Braindead en Nei það er ekki Braindead heldur Shaun of the dead. Ég kíkti á þessa mynd og hafði engar væntingar áður en ég horfði á hana, borgaði ekki einu sinni fyrir hana því ég "stal" henni af netinu. Þessi mynd er fáránlega góð, hún er Bresk og því er húmorinn helv. góður. Þetta er svona bland af splatter og gríni og fjöri og er í raun verið að gera grín af Dawn of the dead og 28 days later. Hún fær 8,0 í kvikmyndabók Einars.
'
Ég var að tala við félaga minn í gær og sagði hann mér ógeðslega fyndna sögu af sjálfum sér frá því fyrir tveimur helgum síðan en þá var hann að dansa á Prikinu. Gaurinn sem ég vil ekki nafngreina...æji fokk en hann heitir Kiddi-allavega tekur sig til og fer að pissa, en hann velur ekki klósettskálina til að pissa í heldur labbar hann einn síns liðs rakleiðis upp í eldhúsið á staðnum og mígur út um allt gólf inní eldhúsinu, sem betur fer var enginn inni í eldhúsinu en hey!.... Svo þegar hann er að labba út mætir hann einhverjum starfsmanni staðarins og hann hendir honum beint út, er satt að segja alveg brjálaður við Kidda greyið. En það verður að viðurkennast að þetta er ógeðslega fyndið, að labba inní eitthvað eldhús á einhverjum skemmtistað og míga út um allt eldhúsið. Það væri hægt að skrifa heila bók um uppátækinn hans Kidda því þau eru fjöldamörg og það bætist bara í safnið, ég hvet hann eindregið til að halda áfram að steikja eitthvað gott.
þriðjudagur, janúar 18, 2005
Kúkur í lauginni
'
Ég var að fá frétt af mönnum sem stunduðu það að kúka í sundlaugar Reykjavíkurborgar um hánætur. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir við breiðholtslauginna um þrjúleytið í nótt þar sem þeir höfðu klifrað yfir grindverk og kúkað í djúpu laugina. Ekki er vitað hvað mönnunum gekk til en þeir hafa víst stundað þetta athæfi um langt skeið, kúkur hefur fundist í laugardalslauginni og árbæjarlauginni sem og víðar. Búist er við því að mennirnir fái háar fjársektir fyrir athæfi sitt eða dæmdir til að sitja í fangelsi greiði þeir ekki skuldina.
'
'
'
'
'
hey...okey sagan er kannski ekki sönn, en ég geri bara eins og DV gerir, þegar einhver hættir að lesa efnið manns býr maður bara til lygasögur og selur fólki.
'
Einn brandari um DV sem Tóti möllett sagði mér: ,,Hver er munurinn á skeinipappír og DV? DV kemur með skítnum á en skeinipappírinn ekki,,
'
ok lélegur brandari en ég gef bara skít í það!
sunnudagur, janúar 16, 2005
Landpostur.is
'
Landpostur.is vísar í fréttavef fjölmiðlafræðinema við háskólann á Akureyri, eins og gefur að skilja er ég blaðamaður þar og er að skrifa fréttir og aðra pistla um lífið og tilveruna. Ég hvet ykkur til að kíkja á þennan vef því þar er allt sem skiptir máli. Verið er að vinna í að setja hann upp og því er ekki mikið um nýjar fréttir, en það stendur allt saman til bóta. tjekkið á
landpóstinum